Fréttir


1.8.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar vegna verslunar og þjónustusvæðis á Varmalandi

Skipulagsstofnun staðfesti, 1. ágúst 2024, breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 13. júní 2024.

Í breytingunni felst 0,2 ha stækkun verslunar- og þjónustusvæðis (S8) og minnkar íbúðarbyggð (Í4) til samræmis.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.