Fréttir


9.10.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar vegna minnkunar frístundabyggðar í landi Eskiholtsskógar

Skipulagsstofnun staðfesti 9. október 2024 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 13. júní 2024.

Í breytingunni felst að hluta frístundabyggðar (F37) í landi Eskiholtsskógar er breytt í landbúnaðarsvæði. F37 minnkar frá 153,3 í 145,1 ha.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.