Fréttir


6.8.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar vegna efnistökusvæðis í Haffjarðardalsgili

Skipulagsstofnun staðfesti 6. ágúst 2024 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 8. maí 2024.

Í breytingunni felst skilgreining á um 1 ha efnistökusvæði E99 í Haffjarðardalsgili með heimild fyrir allt að 4.000 m3 efnistöku.

Málsmeðferð var óveruleg breyting á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.