Fréttir


20.6.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar vegna verslunar- og þjónustusvæða í Reykholti

Skipulagsstofnun staðfesti, 19. júní 2024, breytingu á Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 sem samþykkt var í sveitarstjórn 3. apríl 2024.

Í breytingunni felst aukin heimild uppbyggingar innan verslunar- og þjónustusvæðis (VÞ36), mörkun lóðar á verslunar- og þjónustusvæði (VÞ34 og VÞ35) og afþreyingar- og ferðamannasvæði (AF35) aðlagað að breyttri legu götunnar Tungurimi. Þá er um 0,1 ha svæði fyrir samfélagsþjónustu (S8) fellt undir verslunar- og þjónustusvæði (VÞ49).

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.