Fréttir


3.9.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar vegna nýrra svæða fyrir verslun og þjónustu og stækkunar frístundabyggðar

Skipulagsstofnun staðfesti, 2. september 2024, breytingu á Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 sem samþykkt var í sveitarstjórn 3. júní 2024.

Í breytingunni felst stækkun á frístundabyggð F32 i Útey. Við það verða efnistökusvæði E26 og E27 felld út. Skilgreind verða tvö ný verslunar- og þjónustusvæði, VÞ48 og VÞ49, en F33 fellur út úr skipulagi. Landbúnaðarsvæði minnkar sem þessu nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.