Fréttir


19.9.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Árborgar vegna Selfosslínu 1

Skipulagsstofnun staðfesti 19. september 2024 breytingu á Aðalskipulagi Árborgar 2020-2036 sem samþykkt var í bæjarstjórn 21. ágúst 2024.

Í breytingunni felst áform um lagningu Selfosslínu 1 í jörð frá sveitarfélagamörkum við Sveitarfélagið Ölfus vestan Ölfusár meðfram nýrri legu Suðurlandsvegar um fyrirhugaða brú yfir Ölfusá og að sveitarfélagamörkum við Flóahrepp. Innan þéttbýlisins á Selfossi verði jarðstrengur lagður frá sveitarfélagamörkum við Flóahrepp meðfram núverandi Suðurlandsvegi að tengivirki á Selfossi.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.