Fréttir


9.10.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Akureyrar vegna færslu reiðvegar við Lögmannshlíð

Skipulagsstofnun staðfesti 9. október 2024 óverulega breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018- 2030 sem samþykkt var í bæjarráði 29. ágúst 2024.

Í breytingunni felst að legu reiðvegar um Lögmannshlíð er breytt og hún færð til suðurs þar sem hún liggur meðfram Lögmannshlíðarvegi.

Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast aðalskipulagsbreytinguna í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.