Fréttir


  • Talknafjordur

1.7.2024

Staðfesting á Aðalskipulagi Tálknafjarðarhrepps 2019-2039

Skipulagsstofnun staðfesti, 1. júlí 2024, Aðalskipulag Tálknafjarðarhrepps 2019-2039 sem samþykkt var í sveitarstjórn 23. apríl 2024. Við gildistöku aðalskipulagsins fellur úr gildi Aðalskipulag Tálknafjarðarhrepps 2006-2018 ásamt síðari breytingum. Samhliða tekur gildi skrá yfir vegi í náttúru Íslands, sem samþykkt var í sveitarstjórn á sama fundi.

Málsmeðferð var samkvæmt 30.-32. gr. skipulagslaga.

Hægt er að nálgast aðalskipulagið í Skipulagsgátt og á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar það hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.