Sérfræðingur í skipulagsmálum
Umsóknarfrestur er til og með 30. maí 2016
Starfið er á sviði aðalskipulags, sem er eitt fjögurra fagsviða á Skipulagsstofnun. Meðal helstu verkefna þess eru leiðbeiningar og eftirlit með gerð aðal- og svæðisskipulags og afgreiðsla þess ásamt að veita ráðgjöf um skipulagsmál. Laun eru samkvæmt kjarasamningi ríkisins og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Starfssvið
Leiðbeiningar, afgreiðsla og eftirlit með gerð aðal- og svæðisskipulags og umhverfismati þess. Ráðgjöf og samskipti við sveitarfélög, samstarfsaðila og almenning. Þátttaka í verkefnisteymum svo sem um framfylgd landsskipulagsstefnu, gerð leiðbeininga og þróun verklags.
Upplýsingar og umsókn er að finna á capacent.is/s/2905
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meistaragráða á sviði skipulagsmála, svo sem í skipulagsfræði, bæjahönnun, arkitektúr eða landfræði.
- Reynsla af gerð skipulagsáætlana æskileg.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Gott vald á íslensku í ræðu og riti.
- Frumkvæði, nákvæmni og ögun í vinnubrögðum.