Ofanflóðavarnir á Bíldudal
Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu
Framkvæmd ekki háð mati
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að ofanflóðavarnir neðan Stekkkjargils og Milligilja á Bíldudal í Vesturbyggð skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 1. júlí 2022.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér.