Nýjar skíðalyftur á skíðasvæði Tindastóls
Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að nýjar skíðalyftur á skíðasvæði Tindastóls, sveitarfélaginu Skagafirði, skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum skv. lögum nr. 106/2000.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér .
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 6. mars 2018.