Hringvegur (1). Bygging brúar yfir Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði og veglagning í Skútustaðahreppi og Norðurþingi
Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að bygging brúar yfir Jökulsá á Fjöllum á Hringvegi og veglagning í Skútustaðahreppi og Norðurþingi skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna á hér
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 21. janúar 2014.