Hellisheiðarvirkjun. Breytingar vegna SulFix II
Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að breytingar á Hellisheiðarvirkjun vegna SulFix II verkefnisins skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 7. október 2013.