Borgarbraut frá Merkigili að Bröttusíðu á Akureyri
Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að lagning Borgarbrautar frá Merkigili að Bröttusíðu skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum. nr. 106/2000 m.s.br.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 10. júní 2013.