Fréttir


5.3.2013

Hækkun uppsetts afls Múlavirkjunar, í Eyja- og Miklaholtshreppi, úr 1,9 MW í 3,2 MW og fyrirhuguð breyting á vatnsborðsskilyrði gildandi virkjunarleyfis

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að hækkun uppsetts afls Múlavirkjunar, í Eyja- og Miklaholtshreppi, úr 1,9 MW í 3,2 MW og á vatnsborði Baulárvallavatns, sem orðið hefur vegna reksturs virkjunarinnar og í samræmi við tillögu um nýtt vatnsborðsskilyrði í virkjunarleyfi skuli ekki  háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 8. apríl 2013.