Urðunarstaður við Bakkafjörð, Langanesbyggð
Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að urðunarstaður við Bakkafjörð, Langanesbyggð, skuli ekki háður mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 105 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 4. mars 2013.