Skýrsla um ferðamennsku á miðhálendi Íslands
Staða og spá um framtíðarhorfur
Í tengslum við gerð landsskipulagsstefnu var unnin skýrsla um ferðamennsku á miðhálendinu sem ber heitið Ferðamennska á miðhálendi Íslands: Staða og spá um framtíðarhorfur. Höfundurinn er Anna Dóra Sæþórsdóttir, dósent í ferðamálafræði við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands. Skýrslan er mikilvægt forsenduskjal við mótun landsskipulagsstefnu ásamt því að upplýsingar úr henni munu nýtast við umhverfismat stefnunnar.