Breiðadalsvirkjun, 500 kW virkjun í landi Veðrarár 2 í Önundarfirði
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskylda framkvæmd
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að Breiðadalsvirkjun, 500 kW virkjun í landi Veðrarár 2 í Önunarfirði Ísafjarðarbæ skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má skoða hér.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála (sbr. 25. gr. laga nr. 131/2011) og er kærufrestur til 21. maí 2012.