Landsskipulag - Rýnifundur vegna sviðsmynda fyrir stefnu um búsetumynstur 18. apríl
Um er að ræða rýni á sviðsmyndum sem stillt er upp fyrir stefnu til framtíðar um fyrirkomulag búsetu og dreifingu byggðar. Um er að ræða ólíkar sviðsmyndir með tilliti til þess að hvað miklu leyti ætti að stýra þróun búsetumynsturs með það að markmiði að styrkja núverandi þéttbýli og þétta byggð. Þættir eins og verndun, landbúnaður, menningarlandslag og ásýnd lands eru einnig teknir inn í þessar sviðsmyndir. Nánari lýsing á sviðsmyndum verður birt hér á netinu og send á samráðsvettvang fyrir fundinn.
Hér með er auglýst eftir þátttakendum í þetta verkefni en tilkynningar um það sendist á netfangið landsskipulag@skipulagsstofnun.is í síðasta lagi 17. apríl næstkomandi.