Kynning lýsingar
Lýsing landsskipulagsstefnu 2013-2024 ásamt matslýsingu vegna umhverfismats
Skipulagsstofnun hefur tekið saman lýsingu á gerð landsskipulagsstefnu og umhverfismati sbr. reglugerð um landsskipulagsstefnu nr. 1001/2011.
Stofnunin auglýsir hér með eftir athugasemdum og ábendingum við lýsinguna og geta allir sem þess óska komið athugasemdum á framfæri við Skipulagsstofnun innan þriggja vikna frá birtingu þessarar auglýsingar.
Hægt er að nálgast lýsinguna á vef landsskipulagsstefnu www.landsskipulag.is og hér í Pdf-skjali. Einnig liggur hún frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Athugasemdir sendist í síðasta lagi 29. mars 2012 til Skipulagsstofnunar Laugarvegi 166, 150 Reykjavík eða á netfangið landsskipulag@skipulagsstofnun.is