Natríumklóratverksmiðja Kemíra á Grundartanga, Hvalfjarðarsveit
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur ákvarðað að ofangreind framkvæmd skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að natríumklóratverksmiðja Kemíra á Grundartanga, Hvalfjarðarsveit, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 107/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 105 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 24. október 2011.