Fréttir


22.6.2011

Afkastaaukning fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar hf. í Helguvík, Reykjanesbæ

Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu

Framkvæmd ekki háð mati.

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að afkastaaukning fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar hf. í Helguvík, Reykjanesbæ skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum. nr. 106/2000 m.s.br.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér.  Ákvörðun
Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til
29. júlí 2011