Eldi á 6.000 tonnum af laxi í sjókvíum í Reyðarfirði, Fjarðabyggð
Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eldi á allt að 6.000 tonnum af laxi í sjókvíum í Reyðarfirði skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 11. júlí 2011.