Fréttir


4.8.2010

Breyting á legu Búðarhálslínu 1, Ásahreppi og Rangárþingi ytra

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmdar

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að breyting á legu Búðarhálslínu 1, Ásahreppi og Rangárþingi ytra, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum. nr. 106/2000 m.s.br.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 6. september 2010.