Lagning nýs vegar að efnistökusvæði í Húsaborg, Vestur-Húnaþingi
Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að lagning nýs vegar að efnistökusvæði í Húsaborg, Vestur-Húnaþingi skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 3. ágúst 2010.