Fréttir


10.6.2010

Skálasvæði við Álftavatn í Rangárþingi ytra

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að uppbygging skálasvæðis við Álftavatn í Rangárþingi ytra skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 28. maí. 2010.