Fráveitumannvirki í Sandgerðisbæ fyrir úrgang frá Keflavíkurflugvelli
Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að fráveitumannvirki í Sandgerðisbæ fyrir úrgang frá Keflavíkurflugvelli skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166,150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér .
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 16 . nóvember 2015 .