Vatnsaflsvirkjun við Kaldá, Önundarfirði
Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu
Framkvæmd ekki háð mati
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að Vatnsaflsvirkjun við Kaldá, Önundarfirði skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166,150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 8. október 2015.