Breytingar á Kjalvegi, Bláskógabyggð
Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að breytingar á Kjalvegi skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 28. september 2015.