Endurbygging Gönguskarðsárvirkjunar við Sauðárkrók
Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að endurbygging Gönguskarðsárvirkjunar við Sauðárkrók skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 6. júlí 2015.