Tillaga að landsskipulagsstefnu 2015-2026 til umhverfis- og auðlindaráðherra
Umsögn Skipulagsstofnunar um framkomnar athugasemdir fylgja tillögunni ásamt forsenduskýrslu og umhverfismati.
Í október 2013 fól umhverfis- og auðlindaráðherra Skipulagsstofnun að hefja vinnu við gerð landsskipulagsstefnu. Tillagan liggur fyrir og áætlað er að hún verði lögð fram á Alþingi sem tillaga til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu 2015-2026 á yfirstandandi þingi. Tillöguna ásamt fylgiskjölum er að finna hér að neðan.
Stofnunin hefur jafnframt tekið saman umsögn um framkomnar athugasemdir við auglýsta tillögu að landsskipulagsstefnu. Þar er að finna yfirlit yfir þá sem sendu inn umsagnir og athugasemdir, samantekt athugasemda og efnisleg svör við þeim. Alls bárust 73 bréf á kynningartímanum og vill Skipulagsstofnun færa öllum þeim sem lögðu fram umsagnir og athugasemdir þakkir fyrir þeirra framlag.
Tillaga að landsskipulagsstefnu 2015-2026 til umhverfis- og auðlindaráðherra
- Landsskipulagsstefna 2015-2026 - Tillaga til umhverfis- og auðlindaráðherra (mars 2015)
- Landsskipulagsstefna 2015-2026 - Tillaga til umhverfis- og auðlindaráðherra (pdf útgáfa, mars 2015)
Fylgiskjöl tillögunnar:
- Skipulagsmál á Íslandi 2014 - lykilmælikvarðar og fyrirliggjandi áætlanir (ágúst 2014)
- Skipulagsmál á Íslandi 2014 – lykilmælikvarðar og fyrirliggjandi áætlanir (pdf útgáfa, ágúst 2014)
- Landsskipulagsstefna 2015-2026 - Umhverfismat (mars 2015)
- Landsskipulagsstefna 2015-2026 - Umhverfismat (pdf útgáfa, mars 2015)
- Landsskipulagsstefna 2015-2026 - Umsögn um framkomnar athugasemdir við auglýsta tillögu (mars 2015)
- Landsskipulagsstefna 2015-2026 - Umsögn um framkomnar athugasemdir við auglýsta tillögu (pdf útgáfa, mars 2015)
Framkomnar athugasemdir við tillögu að Landsskipulagsstefnu 2015-2026