Landsskipulagsstefna - Fundurinn í Borgarnesi verður 26. janúar kl. 14-16 í Landnámssetrinu
Breyting hefur orðið á auglýstum fundi í Borgarnesi, en honum var aflýst vegna veðurs. Fundurinn verður í Landnámssetrinu 26. janúar kl. 14-16.
Á fundinum verður kynnt auglýst tillaga að Landsskipulagsstefnu 2015-2026 auk þess sem að fjallað verður sérstaklega um framfylgd landsskipulagsstefnu í skipulagsgerð sveitarfélaga svo sem við endurskoðun aðalskipulags.
Kynningarfundir:
- Akureyri 21. janúar kl. 15-17 á Hótel Kea
- Blönduósi 22. janúar kl. 13-15 í Eyvindarstofu
- Borgarnesi 26. janúar kl. 14-16 í Landnámssetrinu
- Egilsstöðum 27. janúar kl. 15-17 á Hótel Héraði
- Selfossi 28. janúar kl 15-17 á Hótel Selfossi
- Reykjavík 29. janúar kl. 15-17 á Nauthóli. Fundurinn verður sendur út í gegnum vef Skipulagsstofnunar