Landsskipulagsstefna 2015-2026 - tillaga til kynningar
Skipulagsstofnun auglýsir tillögu að Landsskipulagsstefnu 2015-2026 til kynningar ásamt umhverfismati í samræmi við lög nr. 123/2010 og 105/2006 og reglugerð nr. 1001/2011.
Í tillögunni er sett fram stefna um:
1. Skipulag á miðhálendi Íslands
2. Skipulag í dreifbýli
3. Búsetumynstur og dreifingu byggðar
4. Skipulag á haf- og strandsvæðum
Tillaga að Landsskipulagsstefnu 2015-2026, ásamt fylgiskjali, Skipulagsmál á Íslandi 2014 – lykilmælikvarðar og fyrirliggjandi áætlanir, er aðgengileg á vef landsskipulagsstefnu, www.landsskipulag.is og hér á vef Skipulagsstofnunar. Gögnin liggja jafnframt frammi til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 105 Reykjavík. Fyrirhugaðir eru kynningarfundir vegna tillögunnar í janúar 2015 og verða þeir auglýstir síðar.
Allir sem þess óska geta gert athugasemdir við tillögu að Landsskipulagsstefnu 2015-2026 og umhverfismat hennar. Frestur til að koma skriflegum athugasemdum á framfæri við Skipulagsstofnun er til 13. febrúar 2015. Þeim skal skilað bréflega til Skipulagsstofnunar, með tölvupósti á netfangið landsskipulag@skipulagsstofnun.is eða um athugasemdagátt á vef landsskipulagsstefnu www.landsskipulag.is.
Auglýst tillaga að landsskipulagsstefnu:
-
Landsskipulagsstefna 2015-2026 - Tillaga til kynningar (pdf útgáfa, 19. desember 2014)
-
Landsskipulagsstefna 2015-2026 - Tillaga til kynningar (19. desember 2014)
Fylgiskjal auglýstrar tillögu að landsskipulagsstefnu:
-
Skipulagsmál á Íslandi 2014 – lykilmælikvarðar og fyrirliggjandi áætlanir (pdf útgáfa, ágúst 2014)
-
Skipulagsmál á Íslandi 2014 – lykilmælikvarðar og fyrirliggjandi áætlanir (ágúst 2014)