Aukin vinnslugeta og vatnsnám OR í Vatnsendakrikum
Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að framkvæmdirnar skuli ekki háðar mati.
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að aukin vinnslugeta og vatnsvinnsla á vinnslusvæði Orkuveitu Reykjavíkur í Vatnsendakrikum skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 13. janúar 2015.