17.7.2014
Aukin framleiðsla Íslandsbleikju, Grindavík
Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að framkvæmdirnar skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að aukin framleiðsla Íslandsbleikju í Grindavík skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 19. ágúst 2014.
Hér er hægt að lesa ákvörðunina.