Njarðvíkurhöfn - suðursvæði, Reykjanesbæ
Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu
Framkvæmdin er ekki háð mati á umhverfisáhrifum
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að stækkun athafnasvæðis á suðursvæði Njarðvíkurhafnar skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér.
Ákvörðun má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 31. október 2022.