Námur á Lyngdalsheiði, Bláskógabyggð
Mat á umhverfisáhrifum, ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda.
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að efnistaka úr námum á Lyngdalsheiði, Bláskógabyggð, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 10. maí 2016.