Náma E-63, Breiðárlón, Sveitarfélaginu Hornafirði
Skipulagsstofnun hefur ákvarðað að framkvæmdin skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að efnistaka úr námu E-63, Breiðárlón, Sveitarfélaginu Hornafirði skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun og er einnig að finna hér.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 24. júní 2016.