Móttaka, geymsla og urðun á óvirkum úrgangi á Njarðvíkurheiði
Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu
Framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að móttaka, geymsla og urðun á óvirkum úrgangi á Njarðvíkurheiði í Reykjanesbæ skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar, greinargerð framkvæmdaraðila, umsagnir umsagnaraðila og viðbrögð framkvæmdaraðila við þeim má finna hér.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 4. mars 2024.