Fréttir


27.6.2024

Líforkuver á Dysnesi, Hörgársveit

Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu

Framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að Líforkuver á Dysnesi, Hörgársveit, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar ásamt gögnum málsins eru aðgengileg í Gagnagrunni umhverfismats og á Skipulagsgátt

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 29. júlí 2024.