Lífmassaauking ÍS47 um 600 tonn af regnbogasilungi og laxi í sjókvíum í Önundarfirði, Ísafjarðarbæ
Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu
Framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að lífmassaaukning ÍS47 um 600 tonn af regnbogasilungi og laxi í sjókvíum í Önundarfirði, Ísafjarðarbæ, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.
Hér má finna ákvörðun Skipulagsstofnunar, greinargerð framkvæmdaraðila, umsagnir umsagnaraðila og viðbrögð framkvæmdaraðila við þeim.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 10. október 2024