Lagning stofnæðar hitaveitu frá Hoffelli að Höfn, Hornafirði
Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að lagning stofnæðar hitaveitu frá Hoffelli að Höfn, Hornafirði, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má finna hér.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 17. desember 2018.