Lagning ljósleiðara innan náttúruvættis Teigarhorns, Djúpavogshreppi
Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að fyrirhuguð lagning ljósleiðara innan náttúruvættis Teigarhorns, Djúpavogshreppi, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér .
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 23. mars 2020.