Fréttir


3.7.2024

Kynningarfundur um Vindorkugarð í Garpsdal

Mat á umhverfisáhrifum - Kynning umhverfismatsskýrslu

Kynningarfundur 4. júlí 

Vakin er athygli á kynningarfundi þar sem kynntar verða niðurstöður umhverfismatsskýrslu Vindorkugarðs í Garpsdal. 

Fundurinn verður haldin í Gamla Kaupfélagshúsinu í Krókfjarðarnesi í Reykhólahreppi, fimmtudaginn 4. júlí kl. 18:00. 

Fyrir þá sem ekki sjá sér fært að mæta þá verður opnað Virtual Room eftir kynninguna sem verður opið þar til frestur til athugasemda rennur út. Í Virtual Room getur þú skoðað allt efni umhverfismatsins og horft á upptöku af kynningunni. Virtual Room verður aðgengilegt frá heimasíðu EM Orku  frá og með 8. júlí og þar til athugasemdafrestur rennur út.

Frestur til að skila athugasemdum er til 19. ágúst. 

Kynningunni verður ekki streymt, en upptaka verður gerð aðgengileg í Virtual Room.

Fjarfundarkynning (Webinar) verður einnig haldin í vikunni 8. - 12. júlí. Nákvæm dagsetning auglýst síðar.

Hægt er að nálgast gögn málsins og skila inn athugasemdum hér á Skipulagsgátt.