Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðarbæjar vegna íbúðarbyggðar í Selhrauni suður
Skipulagsstofnun staðfesti, 21. júní 2022, breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 sem samþykkt var í bæjarstjórn 20. apríl 2022.
Í breytingunni felst að 2,5 ha svæði í Selhrauni suður er breytt úr athafnasvæði í íbúðarbyggð þar sem gert er ráð fyrir 199 íbúðum.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.