Framleiðsluaukning Íslenska kalkþörungafélagsins á Bíldudal, Vesturbyggð
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að fyrirhuguð framleiðsluaukning Íslenska kalkþörungafélagsins á Bíldudal, Vesturbyggð, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 9. janúar 2020.