Hótel og frístundahús í Heysholti, Rangárþingi ytra
Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að bygging hótels og frístundahúsa í Heysholti, Rangárþingi ytra skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 12. desember 2016.