Hótel í landi Orustustaða, Skaftárhreppi
Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að framkvæmdirnar skuli ekki háðar mati.
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að hótel í landi Orustustaða í Skaftárhreppi skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166,105 Reykjavík.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 11. mars 2016.