Hótel í Hveradölum, Sveitarfélagið Ölfus
Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu
Framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að nýtt hótel í Hveradölum í Sveitarfélaginu Ölfusi, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.
Gögn málsins eru aðgengileg hér.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 20. maí 2024.