Hólsvirkjun í Fnjóskadal í Þingeyjarsveit
Mat á umhverfisáhrifum - álit Skipulagsstofnunar
Skipulagsstofnun hefur lokið álitsgerð vegna Hólsvirkjunar
Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 vegna Hólsvirkjunar, allt að 5,5 MW vatnsaflsvirkjun í Fnjóskadal í Þingeyjarsveit.
Álitið liggur frammi hjá Skipulagsstofnun og er einnig að finna hér ásamt matsskýrslu framkvæmdaraðila.